Langvinnt eitilfrumuhvítblæði á Íslandi árin 2003-2013: Nýgengi, aðdragandi greiningar og undanfari
2016; The Icelandic Medical Association; Volume: 2016; Issue: 04 Linguagem: Norueguês
10.17992/lbl.2016.04.74
ISSN1670-4959
AutoresGunnar Björn Ólafsson, Hlíf Steingrímsdóttir, Brynjar Viðarsson, Anna Margrét Halldórsdóttir,
Tópico(s)Chronic Lymphocytic Leukemia Research
ResumoInngangurLangvinnt eitilfrumuhvítblaeði (Chronic lymphocytic leukemia: CLL) er sjúkdómur af flokki B-eitilfrumukrabbameina (B-cell lymphoproliferative disorders) og er algengasta tegund hvítblaeðis í Evrópu og Norður-Ameríku. 1,2il þess að uppfylla greiningarskilmerki fyrir CLL skal fjöldi B-eitilfrumna í blóði vera 5x10 9 /L í þrjá mánuði og B-frumurnar vera einstofna (monoclonal). 3Samkvaemt skilgreiningu WHO teljast SLL (Small lymphocytic lymphoma) og CLL vera sami sjúkdómurinn en SLL einkennist fyrst og fremst af íferð einstofna eitilfrumna í eitilvef en CLL einkennist af fjölgun B-eitilfrumna í blóði. 4LL er haeggengur sjúkdómur og þróast oft á löngum tíma.Því greinast margir sjúklingar fyrir tilviljun áður en sjúkdómurinn fer að valda einkennum. 1Aukinn fjöldi eitilfrumna í hefðbundnum blóðhag með deilifrumutalningu er því gjarnan fyrsta vísbending um greiningu sem síðar er staðfest með frekari rannsóknum.Þó fram hafi komið ýmsar leiðir til lyfjameðferðar við sjúkdómnum er hann engu að síður ólaeknandi og meðferð miðar að því að halda honum í skefjum.Lifun CLL-sjúklinga er afar breytileg en getur verið allt frá mánuðum upp í áratugi.Ýmsir þaettir tengjast horfum í CLL, svo sem aldur við greiningu, kyn, tvöföldunartími eitilfrumna, ofurstökkbreytingaástand (mutational status) IgV H -mótefnagena, litningabreytingar og tjáning ýmissa próteina. 5,6ngangur: Langvinnt eitilfrumuhvítblaeði einkennist af fjölgun einstofna B-eitilfrumna.Einstofna B-eitilfrumudreyri (monoclonal B-cell lymphocytosis, MBL) er talið forstig sjúkdómsins.Sjúkdómurinn er ólaeknandi en haeggengur og greinist oft fyrir tilviljun við skoðun blóðhags.Langvinnt eitilfrumuhvítblaeði hefur ekki verið rannsakað á Íslandi hvað varðar nýgengi, greiningu, sjúkdómseinkenni eða haekkanir á eitilfrumutalningu í blóði fyrir greiningu.Efniviður og aðferðir: Um er að raeða afturskyggna, lýsandi rannsókn sem naer til sjúklinga sem greindust á árunum 2003-2013.Fengin voru gögn yfir sjúklinga frá Krabbameinsskrá, blóðmeinafraeðideild Landspítala og Laeknasetrinu í Mjódd og var skráning tilfella rakin.Sjúkraskrár voru skoðaðar með tilliti til einkenna, greininga og meðferðar.Upplýsingar um lifun fengust úr Þjóðskrá og um dánarorsakir frá landlaekni
Referência(s)